Kadeco í samvinnu við Reykjanesbæ býður til sölu byggingarrétt og lóðaleigu á 20 lóðum á Tæknivöllum á Ásbrú. Um er að ræða 15 lóðir undir almennt atvinnuhúsnæði í og við Smiðjutröð með nýtingarhlutfallinu 0,5. Stærðir lóða eru frá 2.100 – 7.500 fm lóðir. Einnig 5 lóðir undir lífræna ræktun t.d. gróðurhús með nýtingarhlutfallinu 0,8. Stærðir lóða frá 7.400 – 10.600 fm. Söluverð lóðaréttinda er frá 30 mkr. að inniföldu gatnagerðargjaldi Reykjanesbæjar. Afsláttur er veittur af byggingarréttargjaldi til fyrirtækja með vottaða umhverfisstefnu eða ef byggt er húsnæði með viðurkennda umhverfisvottun. Fyrirhuguð er endurnýjun fráveitukerfa 2027 og áframhaldandi gatnagerð á næstu árum samhliða uppbyggingu.
Reglur um úthlutun
Kadeco úthlutar lóðunum í samstarfi við Reykjanesbæ. Allar nánari upplýsingar um lóðirnar má finna á vefsjá beggja aðila (map.is/kadeco og map.is/reykjanesbaer). Allir lögaðilar geta sótt um lóðir að því gefnu að vera með skráð lögheimili og aðsetur innan EES svæðisins og uppfylli skilyrði Kadeco sjá hér.
Greiða þarf viðeigandi gjöld, þar með talið lágmarks byggingarrétt. Bjóðendur þurfa að kynna sér kvaðir á lóðum um m.a. legu stofnlagna.
Leigutími og gjöld
Leigutími lóðanna er 50 ár með möguleika á framlengingu.
Leigutakar þurfa að greiða eftirfarandi gjöld:
Nánar um greiðslur:
Ef um er að ræða aðila með vottaða umhverfisstefnu eða aðila sem skuldbindur sig til að byggja viðurkennt umhverfisvottað húsnæði er veittur afsláttur af byggingarréttargjaldi niður um 2.000 kr/fm af heimiluðu húsnæði.
Umsókn og nánari upplýsingar
Kadeco tekur við fyrirspurnum um lóðir á netfangið lodir@kadeco.is
Sótt erum lóðir formlega með því að fylla út eftirfarandi umsóknarform:
Umsóknarform
Athugið að umsóknarform getur tekið stutta stund að hlaðast upp. Einnig er hægt að smella hér til að opna umsóknarform í nýjum glugga.
Ferli umsóknar
1. Aðili fyllir út umsókn rafrænt inni á kadeco.is (einnig hægt að fara í umsókn gegnum hlekk í vefsjá).
2. Kadeco fer yfir umsókn og kannar hvort aðili uppfyllir söluskilmálana.
3. Yfirferð skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar á tillögu Kadeco miðað við áætlaða lóðarúthlutun.
4. Geri skipulagsfulltrúi enga athugasemd við úthlutunina fær umsækjandi staðfestingu á að hann uppfylli söluskilmála og þarf þá að greiða úthlutunargjald.
5. Eftir að greiðsla fyrir úthlutunargjald hefur verið reidd af hendi fær viðkomandi sent staðfestingarbréf/úthlutunarbréf Kadeco. Við sama tækifæri er gefinn út reikningur fyrir byggingarréttargjald og gatnagerðargjaldi með gjalddaga 30 dögum eftir úthlutunardagsetningu, og eindaga 15 dögum síðar. Lóðin er tekin af söluskrá.
6. Lóðinni telst úthlutað til viðkomandi aðila og þarf að fylgja skilmálum úthlutunarbréfs, sérstaklega um að sækja um byggingarleyfi innan 12 mánaða.
7. Þegar lóðarhafi hefur lokið við byggingarstig 2 (botnplata reist) er gefinn út lóðarleigusamningur milli Kadeco og lóðarhafa.
Nánari upplýsingar um auglýstar lóðir

Yfirlitsmynd sem sýnir lóðir til úthlutunar á Tæknivöllum

Á kortinu má sjá deiliskipulag lóða á Tæknivöllum