Aðalgata og Aðaltorg

Svæðið við Aðalgötu í Reykjanesbæ nýtur góðs af afar heppilegri staðsetningu við Reykjanesbraut og steinsnar frá fyrirhuguðu Demantssvæði fyrir fraktflutninga við Keflavíkurflugvöll. Svæðið býr yfir miklum möguleikum til uppbyggingar fjölbreyttrar starfsemi og byggðar. Þar er að rísa ný miðstöð verslunar og þjónustu, Aðaltorg.

Aðaltorg í uppbyggingu

Aðaltorg er verslunar- og þjónustutorg sem fellur vel að framtíðarskipulagi nærumhverfis Keflavíkurflugvallar. Aðaltorg er aðeins í um þriggja mínútna fjarlægð frá flugvellinum og aðgengilegt frá Reykjanesbraut. Við hönnun Aðaltorgs er tekið mið af auðveldu aðgengi ferðalanga að verslun og þjónustu á leið til eða frá landinu, samhliða því að vera staðsett miðsvæðis gagnvart íbúum bæjarfélaganna á Suðurnesjum. Markmiðið er að byggja upp þjónustuframboð sem hentar bæði þeim sem fara um Keflavíkurflugvöll og nærliggjandi sveitarfélögum. Meðal þeirra fyrirtækja og þjónustu sem nú þegar er að finna við Aðaltorg má nefna Marriott Courtyard hótel, heilsugæslu, matvöruverslun, apótek, veitingastaði, hárgreiðslustofu, gleraugnaverslun og stærsta hraðhleðslugarð landsins með 20 hleðslustöðvum fyrir rafbíla.

Fasteignaþróunarfélagið Aðaltorg ehf. heldur utan um uppbyggingu við Aðaltorg, sjá nánar á adaltorg.is

Lesa má meira um þróunaráætlun Keflavíkurflugvallarsvæðis, K64, hér.

No items found.

Ertu með spurningar?