Tæknivellir

Tæknivellir eru athafnasvæði á Ásbrú í Reykjanesbæ, skilgreint fyrir léttan iðnað. Staðsetningin er afar hagkvæm og ákjósanleg, í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli og vel tengd við helstu samgönguæðar og þar eru allir nauðsynlegir innviðir til staðar.

Svæðið hentar fyrirtækjum af fjölbreyttum stærðum, hvort sem um ræðir minni framleiðslueiningar eða starfsemi sem þarf rými til vaxtar, en í boði eru lóðir frá 4.000–20.000 fermetrum að stærð á samtals 264 hekturum af byggjanlegu landi.

Athafnasvæði Tæknivalla er tilvalið fyrir létta framleiðslu, hátækni framleiðslu, líftækni- og matvælavinnslu, starfsemi tengda vöruflutningum, tæknivædda starfsemi og gagnatengda starfsemi. Kostir svæðisins styðja við stöðugleika í daglegum rekstri og bjóða upp á rými fyrir langtímavöxt.

Lesa má meira um þróunaráætlun Keflavíkurflugvallarsvæðis, K64, hér.

No items found.

Ertu með spurningar?