
Aðkomusvæði flugstöðvar Keflavíkurflugvallar býður upp á mikla möguleika á að gera íslenskri náttúru hátt undir höfði og skapa frábæra komuupplifun. Í þróunaráætlun Keflavíkurflugvallarsvæðis, K64, eru settar fram nokkrar tillögur sem eru hugsaðar sem viðbót við skipulagsáætlanir Isavia fyrir Keflavíkurflugvöll.
Lagt er til að hanna forgarð eða torg norðan flugstöðvarinnar þar sem eru í þéttri sambúð verslanir, móttaka og afgreiðsla bílaleigubíla, viðburðarými, rými fyrir deiliskrifstofur og svæði til kennslu eða náms.
Að auki eru við forgarðinn hugsuð gestamiðstöð fyrir ferðamenn, hótel, samræmd miðstöð bílaleigubíla og endastöð KRL línunnar, hraðleiðar til Reykjavíkur.
Lesa má meira um þróun og framtíð Keflavíkurflugvallar hér.
Um er að ræða leigulóðir í eigu Ríkissjóðs Íslands sem leigðar eru til 50 ára. Ársleiga lóða er 2% af fasteignamati lóðar fyrir atvinnuhúsnæði en þó að lágmarki 142,6 kr. pr. fermetra samkvæmt byggingarvísitölu frá janúar 2026. Fyrir íbúðarhúsnæði er ársleiga 1,5 % af fasteignamati lóðar. Að öðru leyti gildir gjaldskrá Reykjanesbæjar.
Samræmdar reglur gilda um heimildir Kadeco til að gera samkomulag um forleigurétt við leigutaka lóða á starfssvæði Kadeco, annars vegar í lóðarleigusamningum og hins vegar í sérstöku samkomulagi vegna aðliggjandi lóða. Lesa má nánar um verklagsreglur um forleigurétt hér.