November 26, 2026
26/11/2026

FIFA völlur rís á Ásbrú

Nýr FIFA Arena-knattspyrnuvöllur mun rísa við Háaleitisskóla á Ásbrú. Verkefnið er mikilvæg viðbót við þá innviði og þjónustu sem styðja við áframhaldandi uppbyggingu hverfisins og aukin lífsgæði íbúa. Verkefnið var valið úr 47 umsóknum til FIFA Arena-verkefnisins á Íslandi, en að umsókninni stóðu Reykjanesbær, Háaleitisskóli og Knattspyrnudeild Keflavíkur.

Ásbrú er í mikilli mótun og framtíðarsýnin gerir ráð fyrir að íbúum fjölgi verulega á næstu áratugum. Gert er ráð fyrir um 4.500 nýjum íbúðum til ársins 2050, nýjum skólum, aukinni þjónustu og grænum svæðum sem tengja hverfið saman. Markmiðið er að skapa fjölbreytt, sjálfbært og fjölskylduvænt samfélag þar sem gott er að búa, starfa og njóta frítímans.

Nýi völlurinn styður vel við þá framtíðarsýn. Hann verður aðgengilegur börnum og ungmennum, bæði fyrir skipulagt íþróttastarf og frjálsan leik, og skapar nýjan vettvang fyrir hreyfingu og samveru í hjarta samfélagsins.

Uppbygging Ásbrúar snýst um að byggja upp heilt samfélag til framtíðar, með öflugum innviðum, þjónustu og fjölbreyttum tækifærum til útivistar og samveru. Sú áhersla er einnig í takt við markmið Kadeco og Reykjanesbæjar hum að skapa samfélag á Ásbrú þar sem fólk og fjölskyldur geta vaxið og dafnað.

Nánar: Nýr FIFA-völlur rís á Ásbrú - Víkurfréttir

Nánar um uppbyggingu á Ásbrú: www.asbru.is

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?