
Suðurnesjalína 2 var spennusett föstudaginn 20. nóvember og markaði þar með mikilvæg tímamót í uppbyggingu innviða á Suðurnesjum. Með línunni fær svæðið aðra tengingu við flutningskerfi raforku, sem eykur bæði afhendingaröryggi og flutningsgetu til og frá Suðurnesjum.
Hingað til hefur Suðurnesjalína 1 verið eina flutningsleið raforku milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Nýja línan styrkir því raforkukerfið á svæðinu verulega, gerir það sveigjanlegra í rekstri og auðveldar viðhald og viðbrögð við bilunum.
Fyrir Suðurnesin eru þetta mikilvæg tímamót. Öflugir og traustir innviðir eru ein af grunnforsendum þess að hægt sé að styðja við áframhaldandi fólksfjölgun, atvinnuuppbyggingu, orkuskipti og verðmætasköpun á svæðinu.
Þetta fellur jafnframt vel að framtíðarsýn K64 um samræmda og sjálfbæra uppbyggingu Keflavíkurflugvallarsvæðisins til ársins 2050, þar sem uppbygging innviða, atvinnusvæða og samfélags þarf að haldast í hendur.
Aukið afhendingaröryggi og flutningsgeta raforku styrkir þannig forsendur fyrir uppbyggingu þeirra atvinnu- og þróunarsvæða sem K64 vinnur að. Orkuöryggi og aðgangur að endurnýjanlegri orku eru jafnframt meðal þeirra þátta sem K64 leggur áherslu á við markaðssetningu svæðisins gagnvart fyrirtækjum og fjárfestum.
Suðurnesjalína 2 er 220 kV háspennulína, um 30 km að lengd, milli Hamraness í Hafnarfirði og Njarðvíkurheiðar.
Mynd: Landsnet, www.landsnet.is