
Kadeco efnir til ráðstefnu miðvikudaginn 14. október í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ kl. 14:00 í samstarfi við Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Þar verður fjallað um þau tækifæri sem liggja í markvissri uppbyggingu á Suðurnesjum, áhrif aukinna erlendra fjárfestinga á vermætasköpun og samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi.
Að fundinum loknum verður boðið upp á léttar veitingar í tilefni af 20 ára afmælis Kadeco.
Bergllind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum opnar ráðstefnuna.

Bergur Ebbi fundarstjóri leggur línurnar fyrir daginn og fer yfir dagskrá ráðstefnunnar.

Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco.
Suðurnesin eru einstakt svæði á landsvísu sem býr yfir innviðum og tækifærum fyrir fjölbreyttan iðnað af öllum stærðum og gerðum.

Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
Keflavíkurflugvöllur (KEF) skapar langtíma virði fyrir samfélagið í heild sinni. Sveinbjörn fer yfir hlutverk flugvallarins fyrir samfélagið og efnahagslífið og mikilvægi hans sem grunninnvið og stærstu gáttina til Íslands.
Marc O'Connell stjórnarformaður OCO Global
Mark er stjórnarformaður og stofnandi OCO Global, alþjóðlegs ráðgjafarfyrirtækis á sviði viðskipta, útflutnings og fjárfestinga. Hann býr yfir áratuga reynslu af samstarfi við fyrirtæki, opinberar stofnanir og fjárfesta um allan heim og hefur leitt uppbyggingu OCO Global í eitt af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði.
Hvernig geta lykilaðilar á Suðurnesjum unnið saman að næsta vaxtarskeiði svæðisins?
Þátttakendur í pallborði:




Bergur Ebbi fundarstjóri stýrir umræðum
Bergur Ebbi saman helstu þemu dagsins, setur þau í stærra samhengi og varpar fram áhugaverðri sýn á framtíðina.
Hljómsveitin Þríó leikur ljúfa tónlist og boðið verður uppá drykki og veitingar.