
Nýr vefur fyrir Ásbrú er komin í loftið á www.asbru.is. Þar geta gestir kynnt sér spennandi framtíð hverfisins og þá byggingareiti sem munu móta næstu skref í þróun þess. Samhliða hafa ríkið, Reykjanesbær og Kadeco tekið höndum saman um að hraða undirbúningi uppbyggingar í Suðurbrekku. Fram undan eru ný heimili, grænni útisvæði og fleiri tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki.
Ásbrú stendur á tímamótum. Hverfið hefur á undanförnum árum þróast í lifandi og fjölbreytt samfélag og nú tekur við nýr kafli, með uppbyggingu sem hefst á allra næstu misserum. Á nýja vefnum er framtíðarsýnin sett fram á aðgengilegan hátt, með gagnvirku korti, kynningu á uppbyggingarsvæðum og upplýsingum fyrir íbúa, fjárfesta og verktaka.
Mikilvægt skref var stigið í gær, 16. september, þegar Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirrituðu viljayfirlýsingu um samstarf við undirbúning og hraðari uppbyggingu sérbýla í Suðurbrekku á Ásbrú.
Með yfirlýsingunni staðfesta aðilar sameiginlegan metnað til að greiða fyrir uppbyggingunni og vinna að því að fyrstu lóðir verði úthlutunarhæfar sem fyrst að loknum nauðsynlegum undirbúningi. Kadeco annast rannsóknir og sýnatöku á svæðinu á þessu ári og leiðir undirbúning þess. Reykjanesbær vinnur að skipulagsmálum og undirbúningi gatnagerðar og annarra innviða. Niðurstöður rannsókna og frekari undirbúningur munu leggja grunn að áfangaskiptingu og nánari framkvæmda- og tímaáætlun.

Suðurbrekka er einn þeirra uppbyggingarreita sem gestir geta kynnt sér á nýja vefnum. Þar er gert ráð fyrir um 200 íbúðum í einbýlishúsum, raðhúsum og lágreistum fjölbýlishúsum. Byggðin mun fylgja landslaginu, með áherslu á birtu, útsýni og skjól. Grænt svæði með göngustígum og útivistarmöguleikum liggur um miðju hverfisins og tengir það við nærliggjandi byggð.
Á Suðurbrautarreit er gert ráð fyrir allt að 280 íbúðum í fjölbýlishúsum og raðhúsum. Þar er stefnt að hlýlegri, fjölskylduvænni byggð með sameiginlegum görðum, auknum gróðri og góðum leiðum fyrir gangandi og hjólandi.
Við Breiðbraut er fyrirhugað að bæta allt að 230 nýjum íbúðum við núverandi byggð. Fjölbýlishús og lágreist raðhús munu falla inn í heildstætt hverfi þar sem græn útirými og skjól skipa stóran sess. Heilsustígurinn tengir svæðið við nærliggjandi byggð og nýtt leiksvæði, Hugarflugvöll.
Við Grænásbraut og Skógarbraut er gert ráð fyrir rúmlega 100 nýjum íbúðum ásamt nýjum grunnskóla. Þar verður jafnframt lögð áhersla á aðlaðandi samkomu- og útivistarsvæði sem nýtast allt árið, meðal annars við sleðabrekkuna, og öruggar leiðir um hverfið.
Á Spítalareit mætast saga og framtíð. Gamli spítalinn og Andrews-leikhúsið verða varðveitt og samþætt nýrri íbúðabyggð. Þar er gert ráð fyrir eins til fjögurra hæða húsum sem mynda skjólgóða og sólríka inngarða, með fjölbreyttum íbúðagerðum og vönduðu yfirbragði.

Markmiðið er að skapa umhverfi þar sem daglegt líf fær að blómstra. Gróður, gönguleiðir, góð almenningsrými og vistvænar lausnir eiga að auka lífsgæði og tengja nýja byggð við það samfélag sem þegar hefur fest rætur á Ásbrú. Þannig verða til fleiri búsetukostir fyrir ungt fólk, stækkandi fjölskyldur og eldri íbúa, samhliða því að þjónusta og mannlíf eflast.
Uppbyggingin verður áfangaskipt. Langtímasýnin til ársins 2050 gerir ráð fyrir að íbúðum fjölgi um 4.500 og íbúar verði um 14.000. Samhliða er gert ráð fyrir fleiri skólum, aukinni verslun og þjónustu og fjölbreyttum tækifærum til atvinnuuppbyggingar.
Kadeco hvetur íbúa, verðandi íbúa, fjárfesta og verktaka til að skoða nýja vefinn og kynnast því sem fram undan er. Þar er einnig hægt að skrá sig á póstlista og fá fréttir af uppbyggingunni, upplýsingar um viðburði og upphaf sölu.
Kynntu þér framtíð Ásbrúar á www.asbru.is