September 9, 2026
9/9/2026

Nýtt hjúkrunarheimili mikilvæg viðbót við samfélagið á Ásbrú

Nýtt hjúkrunarheimili við Keilisbraut á Ásbrú mun styrkja þjónustu við eldra fólk á Suðurnesjum og verða mikilvægur hluti af áframhaldandi uppbyggingu hverfisins. Fulltrúar Kadeco sóttu kynningarfund þann 2. september síðastliðinn þar sem Glóra ehf. kynnti hönnun heimilisins og fyrirhugaðar framkvæmdir. Undirbúningur verkefnisins er langt kominn og samkvæmt kynningunni er afhending áætluð 9. júní 2028.

Heimilið verður með rými fyrir 90 íbúa og verður núverandi húsnæði við Keilisbraut aðlagað að starfseminni með umfangsmiklum breytingum og endurbótum. Í hönnuninni er lögð áhersla á björt og heimilisleg rými, gott aðgengi og aðstæður sem styðja við sjálfstæði, öryggi og lífsgæði íbúa. Einkarými og sameiginlegir salir eiga að gefa fólki kost á bæði næði og samveru, samhliða því að skapa gott vinnuumhverfi fyrir starfsfólk.

Uppbyggingin er ánægjuleg viðbót við þá þróun sem á sér stað á Ásbrú. Þar hefur á undanförnum árum vaxið fjölbreytt samfélag og fram undan eru verkefni sem munu fjölga íbúðum og efla innviði hverfisins. Uppbyggingarsamningur Kadeco, íslenska ríkisins og Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir allt að 1.000 nýjum íbúðum ásamt innviðum. Eitt þessara verkefna er fyrirhuguð uppbygging á Spítalareit, þar sem samið hefur verið um að lágmarki 200 íbúðir af fjölbreyttri stærð og gerð.

Tölvugerð mynd af því hvernig hjúkrunarheimilið og aðkoma þess mun líta út

Samhliða íbúðauppbyggingunni skiptir máli að þjónusta og samfélagslíf vaxi með hverfinu. Vel heppnað sumarverkefni Hjarta Ásbrúar í Andrews Theatre sýndi hversu mikils virði samkomustaðir og fjölbreytt afþreying eru fyrir börn og fjölskyldur á svæðinu. Verkefnið byggði á hugmyndum barna í Háaleitisskóla og stóð fram í miðjan ágúst. Sú reynsla er dýrmætt innlegg í áframhaldandi þróun samfélagsstarfs á Ásbrú. Með nýju hjúkrunarheimili bætist við þjónusta fyrir eldri kynslóðir og fleiri fá tækifæri til að eiga heimili í hverfinu við aðstæður sem henta þeirra þörfum.

Þessi þróun fellur vel að framtíðarsýn K64 fyrir Ásbrú, þar sem áhersla er lögð á fjölbreytta byggð, aukna nærþjónustu og góðar tengingar. Hjúkrunarheimilið styður þá sýn með því að færa mikilvæga velferðarþjónustu inní hverfið og nýta mannvirki sem fyrir eru til nýs samfélagslegs hlutverks. Þannig heldur umbreyting Ásbrúar áfram, þar sem saga svæðisins og nýjar þarfir samfélagsins mætast.

Kadeco fagnar uppbyggingunni og þeirri mikilvægu þjónustu sem heimilið mun færa Suðurnesjum. Verkefnið styrkir Ásbrú sem hverfi fyrir ólíkar kynslóðir og undirstrikar mikilvægi þess að húsnæði, þjónusta og samfélagslíf þróist saman.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?