May 16, 2025
26/5/2025

Aðalfundur Kadeco og ársskýrsla 2024

Aðalfundur Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, var haldinn föstudaginn 16. maí. Á fundinum var ársreikningur félagsins kynntur og ársskýrsla gefin út. Í stjórn Kadeco voru kjörin Einar Jón Pálsson, Guðmundur Daði Rúnarsson og ný inn í stjórn koma Salóme Guðmundsdóttir, Einar Gunnar Thoroddsen og Guðný Birna Guðmundsdóttir sem taka við af Steinunni Sigvaldadóttur, Evu Stefánsdóttur og Páli Jóhanni Pálssyni. Salóme Guðmundsdóttir var kjörin formaður stjórnar. Hrafn Hlynsson var kjörinn varamaður. Steinunni, Evu og Páli var þakkað fyrir vel unnin störf.

Árið 2024 var viðburðaríkt í starfsemi Kadeco, en meðal helstu verkefna má nefna vinnu við deiliskipulag á fjórum reitum á Ásbrú fyrir um 1.000 íbúðir, mótun þróunaráætlunar fyrir Helguvík og Bergvík með Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ og samráð við börn í Háaleitisskóla á Ásbrú, sem fengin voru til að hafa áhrif á mótun umhverfis í tengslum við nýtt rammaskipulag. Þá er alþjóðleg markaðssetning K64 hafin og vekur þegar athygli.

Stjórn Kadeco 2024 ásamt framkvæmdastjóra. F.v. Eva Stefánsdóttir, Guðmundur Daði Rúnarsson, Pálmi Freyr Randversson framkvæmdastjóri Kadeco, Steinunn Sigvaldadóttir formaður stjórnar, Einar Jón Pálsson og Páll Jóhann Pálsson.
Ný stjórn fyrir árið 2025 var kjörin á aðalfundi. F.v. Einar Gunnar Thoroddsen, Pálmi Freyr Randversson framkvæmdastjóri Kadeco, Salóme Guðmundsdóttir formaður stjórnar, Guðmundur Daði Rúnarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Einar Jón Pálsson.

Smellið hér til að lesa árssýrslu og ársreikning Kadeco fyrir árið 2024.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?