July 6, 2026
6/7/2026

Aðalfundur Kadeco og Ársskýrsla 2025

Aðalfundur Kadeco var haldinn fimmtudaginn 28. Maí.  Á fundunum var ársreikningur félagsins kynntur og ársskýrsla gefin út. Ný stjórn Kadeco er skipuð þeim Salóme Guðmundsdóttur, Einari Gunnari Thoroddsen, Einari Jóni Pálssyni, Hrönn Ingólfsdóttur og Rúnari Fossádal Árnasyni. Hrönn og Rúnar taka við af Guðmudi Daða Rúnarssyni og Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur. Salóme Guðmundsdóttir var kjörin formaður stjórnar og þeim Guðmundi Daða og Guðnýju Birnu voru þökkuð vel unnin störf. Hrafn Hlynsson var kjörinn varamaður.

Árið 2025 var viðburðaríkt í starfsemi Kadeco. Aukin áhersla var lögð á markaðssetningu og kynningu á K64 og þeim tækifærum sem svæðið hefur upp á að bjóða fyrir innlend og erlend fyrirtæki og fjárfesta. Sala byggingarréttar og skipulag íbúðauppbyggingar á Ásbrú hélt áfram á árinu og er undirbúningur vel á veg kominn. Í tengslum við þá uppbyggingu var unnið að mótun markaðs og kynningarefnis sem mun nýtast við að byggja upp áhuga á svæðinu til framtíðar. Þá er hélt áfram vinna við mótun þróunaráætlunar fyrir Helguvík og Bergvík með Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ og er deiliskipulagsvinna langt komin.  Starfsfólk Kadeco tók þátt í ráðstefnum erlendis og kynnti K64 undir slagorðinu Iceland‘s Airport Region og má finna fyrir auknum áhuga fjárfesta með aukinni vitund á Íslandi og Suðurnesjunum sem tengipunkta heimsálfanna til austurs og vesturs.

Ný stjórn Kadeco 2026 ásamt framkvæmdastjóra. F.v. Salóme Guðmundsdóttir formaður stjórnar, Pálmi Freyr Randversson framkvæmdastjóri Kadeco, Rúnar Fossádal Árnason, Einar Gunnar Thoroddsen, Einar Jón Pálsson og Hrönn Ingólfsdóttir.

Hér má finna ársskýrslu og ársreikning Kadeco fyrir árið 2025

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?