September 7, 2026
7/9/2026

Algalíf byggir á þekkingu, gæðum og framtíðarsýn á Suðurnesjum

Þegar líftæknifyrirtækið Algalíf hóf starfsemi sína á Ásbrú árið 2014 voru nokkrir staðir til skoðunar, meðal annars í Noregi. Að sögn Kára Guðmundssonar, forstjóra fyrirtækisins, réðu einstakir styrkleikar Suðurnesja úrslitum. „Tryggur aðgangur að hreinni orku, hagkvæmt húsnæði, stuðningur við nýsköpun og góðir möguleikar til uppbyggingar voru meðal þeirra þátta sem vógu þungt í ákvörðuninni,“ segir Kári.

Kári Guðmundsson framkvæmdastjóri Algalíf

Sérhæfð framleiðslutækni gefur forskot á markaði

Í dag er Algalíf leiðandi fyrirtæki í ræktun örþörunga til framleiðslu á astaxanthini, öflugu andoxunarefni sem notað er í heilsuvörur um allan heim. Algalíf nýtir sérhæfða framleiðslutækni þar sem þörungarnir eru ræktaðir í glerrörum undir þúsundum led ljósa.  Afurðin er því mjög hrein þar sem um algerlega lokað og stýrt framleiðsuferli er að ræða og er það lykillinn í samskeppnisforskoti fyrirtækisins á markaði.  Fyrirtækið er með starfsemi sína á Ásbrú og starfa núna um 70 manns hjá félaginu af 17 misnumandi þjóðernum og er stór hluti þeirra sérfræðingar og vísindafólk. Húsnæði fyrirtækisins er í dag um 14 þúsund fermetrar og horfir félagið til enn frekari stækunar á næstu árum.

Aðgengi að mörkuðum og traust skiptir miklu máli

Kári segir marga kosti felast í því að starfa á Suðurnesjum. Náttúruleg kæling vegna loftslagsins, áreiðanleg orka og nálægð við Keflavíkurflugvöll skipti miklu máli. Allar vörur fyrirtækisins eru fluttar út með flugi og aðgengi að alþjóðlegum samgöngum auðveldar bæði útflutning og komu erlendra sérfræðinga sem starfa hjá fyrirtækinu. Eftirspurn eftir vörum Algalífs hefur aukist jafnt og þétt og þótt meginmarkaðurinn hafi verið í Bandaríkjunum er eftirspurn á öðrum mörkuðum Evrópu og Asíu að aukast jafnt og þétt. Kári segir að gæði og traust skipti þar meira máli en lægsta verð. „Þetta er vara til inntöku og viðskiptavinir vilja kaupa bestu mögulegu gæðin. Þess vegna skiptir vörumerkið og traustið sem við byggjum upp miklu máli.“

Örþörungar eru ræktaðir í glerrörum undir þúsundum LED ljósa.

Sterk langtímasýn og öflugt atvinnusamfélag á svæðinu

Aðspurður um K64 þróunaráætlunina segir Kári að skipulag, fyrirsjáanleiki og langtímasýn skipti sköpum fyrir fyrirtæki á svæðinu. Með því að byggja upp öflugt atvinnusamfélag þar sem fyrirtæki deila innviðum, þjónustu og sérþekkingu skapist mikil samlegðaráhrif sem styrki alla aðila.

Framtíðarsýn Algalíf er metnaðarfull. Kári sér fyrir sér að fyrirtækið geti stækkað   umfang sitt verulega og aukið framleiðslugetuna um helming  innan fárra ára, jafnvel tvöfaldað umfangið á næstu 10 árum. Samhliða því horfir fyrirtækið til nýrra tækifæra í þörungarækt og líftækni, meðal annars til þess að komast inn í lækninga- og heilbrigðisgeirann og einnig sé hægt að nýta þörunga t.a.m. til fóðurframleiðsu. „Þekkingin sem hefur byggst upp hér á síðustu árum er ómetanleg. Hún er stærsti styrkurinn okkar og grunnurinn að áframhaldandi vexti.“

Tækifæri í aukinni verðmætasköpun og sérhæfðum störfum

Algalíf er gott dæmi um það hvernig alþjóðlegt hátæknifyrirtæki getur nýtt sér styrkleika Suðurnesja til að byggja upp verðmætasköpun, sérhæfð störf og ný tækifæri til framtíðar. Kári leggur jafnframt áherslu á að Algalíf sé ekki aðeins öflugt framleiðslufyrirtæki heldur einnig spennandi vinnustaður í atvinnugrein sem búi yfir gríðarlegum vaxtarmöguleikum. Með áframhaldandi þróun í örþörungum, líftækni og sjálfvirknivæðingu geti skapast fjölmörg ný tækni- og vísindastörf á Suðurnesjum á komandi árum. „Við höfum byggt upp einstakt fyrirtæki hér á svæðinu og framtíðartækifærin eru fjölmörg“.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?