May 7, 2026
7/5/2026

Frambjóðendur heimsækja Kadeco

Síðustu vikurnar höfum við hjá Kadeco tekið á móti frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga hér á Suðurnesjum. Fulltrúar flokka sem bjóða fram í bæði Suðurnesjabæ og Reykjanesbæ hafa komið í heimsókn til okkar og fengið kynningu á K64 uppbyggingaráætluninni og rætt um þau tækifæri sem framundan eru fyrir svæðið í heild. Hafa þessar heimsóknir verið afar líflegar og áhugaverðar samræður skapast um hin ýmsu málefni. Við eigum von á fleiri heimsóknum fram að kosningunum sem fara fram þann 16. maí.

Við þökkum fyrir góðar heimsóknir og óskum öllum framboðum góðs gengis í kosningunum framundan!

Framsóknarflokkurinn í Reykjanesbæ og fulltrúar Kadeco
Samfylkingin í Suðurnesjabæ og fulltrúar Kadeco
Samfylking i Reykjanesbæ og fulltrúar Kadeco
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ ásamt fulltrúum Kadeco

Viðreisn í Reykjanesbæ ásamt fulltrúum Kadeco
Sjálfstæðísflokkurinn í Suðurnesjabæ ásamt fulltrúa Kaceco

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?