May 23, 2025
23/5/2025

Fullt hús á vorgleði Kadeco 2025

Fimmtudaginn 22. maí bauð Kadeco samstarfsaðilum og fyrirtækjum á K64 áhrifasvæðinu í heimsókn. Heimboðið var hugsað sem tækifæri fyrir ólíka aðila sem starfa á svæðinu og samstarfsaðila Kadeco til þess að fræðast um ýmis verkefni í þróun og ræða þá áfanga sem náðust í K64 á liðnum vetri.

Á viðburðinum fengum við að heyra örerindi frá ýmsum aðilum sem starfa á K64 kjarnasvæðunum. Til máls tóku Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, Helgi Helgason frá Verne Global, Kjartan Eiríksson frá Iceland Eco- Business Park og Ingvar Eyfjörð frá Aðaltorgi.

„Það var ánægjulegt að ná saman með þessum ólíka en flotta hópi samstarfsaðila og fyrirtækja sem starfa hérna á svæðinu. Við höfum öll unnið vel saman síðustu ár að þróun K64 og lykillinn að þeim áföngum sem náðst hafa og þeim sem fram undan eru er gott samstarf og samstaða aðila sem starfa hérna á svæðinu. Við segjum reglulega frá áföngum í K64 þróunaráætluninni en viðburðurinn í ár var aðeins með öðru sniði og það var einstaklega ánægjulegt að fá nokkra af þeim frábæru einstaklingum sem starfa á kjarnasvæðunum til að koma og segja okkur frá því sem fram undan er hjá þeim,“ segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco. Starfsfólk Kadeco þakkar kærlega fyrir samstarfið liðinn vetur og hlökkum til þess sem fram undan er.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?