August 13, 2026
13/8/2026

Fyrirhuguð tiltekt á landi utan lóðarmarka á Tæknivöllum

Kadeco (Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf.) fer með stjórn, umsýslu og þróun á landi ríkissjóðs umhverfis Keflavíkurflugvöll. Í samræmi við þetta hlutverk beinir Kadeco þeim tilmælum til fasteignaeigenda og rekstraraðila á Tæknivöllum að fjarlægja tafarlaust efni, búnað, tæki, númeralaus farartæki og úrgang sem tilheyrir þeim og finna má á óleigðu landi á Tæknivöllum og nágrenni. Um er að ræða landsvæði og lóðir sem eru án þinglýstra eða gildra lóðarleigusamninga.

Samhliða þessu beinir Kadeco þeim hvatningarorðum til fasteignaeigenda og rekstraraðila á lóðum með gilda lóðarleigusamninga að gæta þess að halda sínum lóðum snyrtilegum, hreinum og lausum við úrgang, í samræmi við skyldur þeirra samkvæmt lóðarleigusamningum og lögreglusamþykkt fyrir Reykjanesbæ nr. 830/2012.

Frestur er veittur til 1. október 2026 til að fjarlægja alla óleyfilega muni, tæki og úrgang af hinu óleigða ríkislandi.

Að þeim fresti liðnum mun Kadeco, í samstarfi við lögreglu, Reykjanesbæ og Hringrás, láta hreinsa svæðið og fjarlægja það sem ekki hefur verið hirt um. Flutningur, geymsla og eftir atvikum förgun munanna mun fara fram á ábyrgð, áhættu og kostnað eigenda þeirra.

Varðandi númeralausar bifreiðar og bílflök sem geymd eru í óleyfi á svæðinu, þá verður þeim safnað á tiltekið lokað söfnunarsvæði á Tæknivöllum þar sem þau verða varðveitt á ábyrgð og kostnað eigenda í 30 daga. Verði þeirra ekki vitjað innan þess frests verður þeim komið til formlegrar afskráningar og endanlegrar förgunar hjá viðurkenndri móttökustöð í samstarfi við viðeigandi yfirvöld.

Fyrirspurnum, upplýsingum um eignarhald eða heimildir og beiðnum um að vitja muna skal beint til Kadeco á netfangið kadeco@kadeco.is eða í síma 425 2100. Sama gildir um upplýsingar ef óvissa er um hvort munir séu innan eða utan lóðarmarka.

Fyrir fasteignaeigendur og rekstraraðila á Tæknivöllum sem vilja nota tækifærið til tiltektar innan eigin lóða, verður endurvinnslugámum komið upp við Ferjutröð í tvær vikur frá og með 1. september 2026, þeim að kostnaðarlausu.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?