June 1, 2026
1/6/2026

Gulur Bíll hefur starfsemi á Tæknivöllum

Kadeco og Gulur bíll ehf. skrifuðu nýlega undir 5 ára samning til reynslu um 2 hektara svæði á Tæknivöllum þar sem starfrækt verður bílgeymslusvæði, sérstaklega ætlað bílaleigubílum en einnig öðrum aðilum. Með þessu er verið að auka þjónustuframboðið á nærsvæði Keflavíkurflugvallar þannig að einkaaðilar og aðilar í rekstri geti geymt bíla sína á öruggan hátt undir góðu eftirliti. "Með tilkomu Guls bíls verður til þjónusta á svæðinu sem leysir vandamál með bílaleigubíla sem lagt er á víð og dreif um Suðurnesin. Við vonumst til að þessir aðilar muni nýta sér hana til frambúðar" segir Pálmi Freyr Randversson framkvæmdastjóri Kadeo.

Við bjóðum Gulan bíl velkominn í hóp fyrirtækja með starfsemi á Tæknivöllum.

Á myndinni má sjá Pálma Frey Randversson, framkvæmdastjóra Kadeco og Guðmund Arason, framkvæmdastjóra Guls bíls ehf. við undirritun samningsins.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?