July 1, 2026
1/7/2026

Hjarta Ásbrúar: "Börnin eiga hugmyndina"

„Þetta byrjaði í rauninni allt árið 2024 með verkefninu „Börnin að borðinu“ þar sem börnin á Ásbrú komu saman í Háaleitisskóla og létu sig dreyma um hvernig svæðið þeirra gæti litið út í framtíðinni. Það er mikil uppbygging framundan á Ásbrú og því mikilvægt að fá að heyra það frá börnunum hvernig hverfi þau vilja alast upp í“ segir Sverrir Bergmann Magnússon, samfélags- og sjálfbærnistjóri Kadeco.  

Samfélagshús í Andrews Theatre

Hjarta Ásbrúar opnaði í vikunni en um er að ræða nýtt samfélagshús fyrir börn og fjölskyldur á svæðinu. Hjartað er staðsett í Andrews Theatre, sem er menningarperla á Ásbrú, en hugmyndin kom eins og áður segir frá börnunum í Háaleitisskóla sem tóku þátt í samráðsverkefninu Börnin að borðinu. Verkefnið hlaut Hönnunarverðlaun Íslands. Nemendur úr öllum árgöngum skólans tóku þátt í vinnusmiðjum leiddum af ÞYKJÓ, þar sem þau kynntu sér rammaskipulag Ásbrúar og útfærðu hugmyndir sínar um uppbyggingu og þróun hverfisins með fjölbreyttum og skapandi hætti.  Verkefnið þótti skara fram úr fyrir að vera frumlegt og áhugavert dæmi um hvernig hægt er að miðla hugmyndum barna og ungmenna með það að leiðarljósi að gefa þeim rödd og virkja til áhrifa.

Hlutirnir gerðust hratt

Sverrir segir að það  þó að hugmyndin hafi komið fram fyrir rúmum tveimur árum hafið það ekki verið fyrr en í vor sem náðist að hlaupa af stað. „Þegar hjólin fóru að snúast var eiginlega magnað að sjá hvað þetta gerðist allt hratt. Við kölluðum saman fulltrúa frá hinum ýmsu sviðum Reykjanesbæjar til að hitta okkur í Andrews og ræða hvað við gætum gert saman til þess að gera þessa hugmynd að veruleika.  Þarna voru fulltrúar frá Björtuvík, Kadeco, Farsældarráði Suðurnesja, velferðar- og íþrótta- og tómstundarsviði Reykjanesbæjar, Fjörheimum, ÍRB, Svæðisstjöð íþróttahéraða á Suðurnesjum og strax ljóst að samhljómurinn var alger og fólk mikið til í að láta þetta verða að veruleika. Þá var farið í að sækja um styrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Blessunarlega þá fengum við styrkinn og þá gerðust hlutir hratt. Við fengum Thelmu Hermannsdóttur til liðs við okkur sem verkefnastjóra, en hún er ótrúlega öflug og tilvalinn leiðtogi í þetta frábæra verkefni“ segir Sverrir.

Hluti af því að koma starfseminni í gang var að útvega húsbúnað, leiktæki og ýmislegt fleira til að hægt væri að halda úti starfi í húsinu. Þar reyndist Isavia vel en félagið útvegaði ýmis húsgögn sem áður nýttust í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Þá fengust fjölmörg leiktæki frá hinum ýmsu samstarfsaðilum og velunnurum verkefnisins.

Thelma Hermannsdóttir verkefnisstjóri Hjarta Ásbrúar og Pálmi Randversson framkvæmdastjóri Kadeco á opnunarhátíðinni.

Fjölbreytt starf í sumar

Starfið í Hjartanu verður fjölbreytt í sumar. Meðal annars verður boðið upp á foreldramorgna á föstudögum fyrir foreldra í fæðingarorlofi, gjaldfrjáls fótbolta- og körfuboltanámskeið, auk listasmiðja fyrir fullorðna. Að sögn Sverris gera forsvarsmenn Hjartans ráð fyrir að starfið geti haldið áfram í haust, en breiður hópur bakhjarla stendur að baki verkefninu sem gerir þeim kleift að bjóða upp á þjónustuna án endurgjalds í sumar.

Ásbrú mikilvægur hlekkur í uppbyggingu á Suðurnesjum

Blásið var til opnunarhátíðar þann 29. Júní síðastliðinn sem tókst afar vel. „Það var geggjað að sjá allt þetta fólk samankomið á opnuninni og það verður gaman að fylgjast með hvernig samfélagið á Ásbrú mótast og þróast. Markmið okkar hjá Kadeco er að starfsemi félagsins skili sér aftur inn í samfélagið á svæðinu. Við erum hlekkur í stórri keðju sem vinnur að uppbyggingu á Suðurnesjum, og Ásbrú er gífurlega mikilvægt svæði í þeirri uppbyggingu. Ég hlakka mikið til að fylgjast með því hvernig Hjarta Ásbrúar mun vaxa og hlakka til að kíkja í kaffi þangað í sumar,“ segir Sverrir að lokum.

Heimasíða verkefnisins er www.hjartaasbruar.com

Starfsfólk Kadeco ásamt Telmu á opnunarhátiðinni.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?