August 10, 2026
10/8/2026

Kadeco styrkir kaup á snjallsjónaukum fyrir börn á Reykjanesi

Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari afhenti nýlega Reykjanes Geopark ellefu snjallsjónauka sem eiga að fara í alla grunnskóla innan Reykjanes jarðvangs. Sjónaukarnir eru af tegundinni Seestar S30 Pro Total Solar Eclipse Edition sem er viðhafnarútgáfa af vinsælum snjallsjónauka, sem mun nýtast vel bæði til að skoða himingeiminn; sól, tungl og reikistjörnur en líka aðra hluti í náttúrunni t.d. fugla og dýr. Með sjónaukanaum er hægt er að taka myndir og myndbönd, sem hentar mjög vel fyrir fjölbreytta og lifandi vísindafræðslu. Hver grunnskóli fær einn sjónauka að gjöf.

Þessi gjöf er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs en Kadeco styrkti kaup á sjónaukunum ásamt atNorth gagnaverinu sem starfar á Ásbrú. Jarðvangurinn leggur út fyrir því sem uppá vantar. Við hjá Kadeco erum afar stolt af því að styðja við svona flott verkefni og óskum Reykjanes Geopark og grunnskólabörnum á Reykjanesskaga til hamingju með stjörnusjónaukana!

Á myndinni má sjá þau Sævar Helga Bragason (Stjörnu-Sævar) og Sigrúnu Svövu Ólafsdóttir Verkefnastjóra fræðslumála hjá Reykjanes Geopark við afhendingu á sjónaukunum.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?