August 10, 2026
10/8/2026

Sporthúsið á Ásbrú: Heilsumiðstöð sem vex með samfélaginu

Þegar Sporthúsið opnaði á Ásbrú haustið 2012 var það ekki sjálfgefið að stór líkamsræktarstöð á fyrrum varnarsvæði myndi verða einn af föstum þjónustukjörnum Reykjanesbæjar. Í dag, rúmum áratug síðar, hefur Sporthúsið fest sig í sessi sem fjölbreytt heilsu- og líkamsræktarmiðstöð fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti á svæðinu.

Öll heilsutengd þjónusta undir sama þaki

Starfsemi Sporthússins snýst í grunninn um heilsu, hreyfingu og þjónustu við fólk á öllum aldri. Þar má finna stóran tækjasal, hóptíma, spinning, jóga, heitan sal, barnagæslu, einkaþjálfun, CrossFit, box og ýmsa stoðþjónustu tengda heilsu og endurhæfingu. Í húsinu starfa einnig aðilar sem bjóða upp á þjónustu á borð við stoðkerfismeðferð, kírópraktík og aðra heilsutengda þjónustu. „Markmiðið er að fólk geti fundið sem flest undir sama þaki, hvort sem það er að hefja heilsuferðalagið, viðhalda formi eða leita sér sérhæfðari aðstoðar“ segir Ari Elíasson eigandi og framkvæmdastjóri Sporthússins.

Ari Elíasson, framkvæmdastjóri Sporthússins

Sögufrægt húsnæði

Húsnæði Sporthússins á sér langa sögu. Á árum áður var þarna íþrótta- og æfingaaðstaða bandaríska hersins, auk sundlaugar og búningsaðstöðu og þar fóru meðal annars fram stórir körfuboltaleikir á árum áður. Þegar rekstur Sporthússins hófst var ákveðið tækifæri fólgið í því að gefa þessu sögulega húsnæði veigamikið hlutverk í ört vaxandi samfélagi. Ari útskýrir að hugmyndin hafi kviknað vegna þess að ákveðið gat hafi verið á markaðnum. Ásbrú var að þróast sem hverfi og Reykjanesbær að stækka, en margir töldu þó óvíst að fólk myndi sækja slíka þjónustu upp á Ásbrú. „Reynslan hefur sýnt annað. Með fjölbreyttri þjónustu og skýrum áherslum hefur Sporthúsið sýnt að Ásbrú er ekki afskekktur staður heldur hluti af einu og sama samfélagi“ segir Ari.

Þjónar fjölbreyttum hópi fólks

Í dag þjónar Sporthúsið ekki aðeins íbúum svæðisins heldur einnig fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum. Þar á meðal eru viðbragðsaðilar Landhelgisgæslunnar, aðilar á flugvallarsvæðinu og erlendar sveitir sem dvelja tímabundið hér á landi. Sú staðsetning, nálægt Keflavíkurflugvelli og miðsvæðis á Ásbrú, hefur reynst mikilvægur styrkleiki.

Öflugur æfinasalur er í Sporthúsinu á Ásbrú

Þjónustan eykst enn frekar

Að sögn Ara eru framundan ný skref í uppbyggingu Sporthússins. „Við munum bæta við padelvöllum sem gert er ráð fyrir að verði tilbúnir um miðjan ágúst og golfhermum sem áætlað er að verði klárir um miðjan september“ Með þessum viðbótum er þjónustan breikkuð enn frekar og Sporthúsið styrkir stöðu sína sem fjölbreyttur áfangastaður fyrir hreyfingu, heilsu og afþreyingu.

Golfhermar verða komnir upp um miðjan september

Mikilvægur þjóinustukjarni

Uppbygging Sporthússins fellur vel að þeirri þróun sem nú á sér stað á Ásbrú og innan K64-svæðisins. Með aukinni íbúabyggð, þjónustu, atvinnustarfsemi og betri tengingum verður þörfin fyrir sterka þjónustukjarna sífellt meiri. Sporthúsið er þegar orðið slíkur kjarni; staður þar sem fólk kemur saman, hreyfir sig, byggir upp heilsu og verður hluti af samfélagi.

Þegar horft er til næstu tíu ára sér Sporthúsið fyrir sér að vera áfram í fremstu röð á sviði líkamsræktar og heilsutengdrar þjónustu á Suðurnesjum. „Markmiðið er skýrt: að vera fyrsti kostur fólks á svæðinu þegar kemur að hreyfingu, heilsu og almennri vellíðan“ segir Ari að lokum.

Glæsilegir Padel vellir eru í byggingu og opna von bráðar

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?