
Iceland Eco Business Park (IEBP), einnig nefndur Græni iðngarðurinn, er vistvænn iðngarður á Suðurnesjum sem byggir á hringrásarhugsun, sjálfbærni og samvinnu fyrirtækja. Starfsemin er staðsett í Helguvík og Bergvík, skilgreindum þróunarsvæðum innan K64 áætlunarinnar, sem mótar heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið í kringum Keflavíkurflugvöll.
Markmið IEBP er að skapa meira en hefðbundna atvinnuaðstöðu. Áherslan er á að byggja upp samfélag fyrirtækja sem deila innviðum, nýta hliðarstrauma og umbreyta því sem áður var fargað, í verðmæti. Með því skapast aðstæður þar sem græn iðnaðarstarfsemi getur vaxið með lágt kolefnisspor og styrkt samkeppnisstöðu sína á alþjóðlegum mörkuðum.
Einstök aðstaða fyrir atvinnuuppbyggingu
Fyrirtækið var stofnað árið 2021 og á rætur að rekja til frumkvæðis Kjartans Eiríkssonar og Þórs Sigfússonar. Árið 2023 keypti félagið byggingar í Helguvík sem upphaflega voru reistar fyrir álversverkefni sem ekki varð að veruleika. Þar hefur nú skapast einstök aðstaða fyrir nýja atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum, meðal annars á sviði matvælaframleiðslu, fiskeldis, ræktunar og tæknilausna. „Á Suðurnesjum eu innviðir á heimsmælikvarða, Keflavíkurflugvöllur er næsti nágranni og gefur beint aðgengi að Evrópu- og Norður-Ameríkumörkuðum“ segir Kjartan Eiríksson framkvæmdastjóri Iceland Eco Business Park.

Hér mætist allt sem grænn iðngarður þarf
Að sögn Kjartans er lykilatriði að hugsa lengra en hefðbundna fasteignaþróun. „Við erum ekki bara að leigja fyrirtækjum aðstöðu heldur er markmið okkar að byggja upp samfélag fyrir umhverfislega ábyrg fyrirtæki og athafaskáld,“ segir hann. „Hér á mætist allt sem grænn iðnaður þarf s.s. hreint loft og hreinar auðlindir eins og græn orka og sjávarafurðir, nægt landssvæði til uppbyggingar auk framtakssemi og þekkingar til að hrinda verkefnum í framkvæmd.”

K64 setur ramma og við fyllum inn í hann
K64 þróunaráætlunin gegnir þar mikilvægu hlutverki. „Það mikilvægasta við K64 er að hún býr til heildarsýn fyrir svæðið í stað þess að verkefni rísi einangruð án samhengis,“ segir Kjartan og bætir við að fyrirsjáanleiki skipti sköpum fyrir uppbyggingu sem þessa. „K64 setur ramma og við fyllum inn í hann með okkar verkefnum og gerum sýnina að veruleika.“

Vilja verða einn þekktasti vistvæni iðngarður á Norður-Atlantshafssvæðinu
Til framtíðar litið sér hann Iceland Eco Business Park sem fyrirmynd. „Eftir áratug viljum við vera einn þekktasti vistvæni iðngarður á Norður Atlantshafssvæðinu, staður þar sem tugir fyrirtækja starfa saman og skapa raunveruleg útflutningsverðmæti,“ segir Kjartan. „Við viljum efla atvinnutækifæri m.a. fyrir ungt fólk á svæðinu með ólíkan bakgrunn og menntun og sýna að það sé hægt að byggja upp iðnað á Íslandi sem er bæði arðbær og sjálfbær – og gera það saman. “