June 12, 2026
23/6/2026

Fjöldi mætti á Vorgleði Kadeco

Kadeco hélt sína árlegu vorgleði fimmtudaginn 11. júní. Fjöldi samstarfsaðila, viðskiptavina og velunnara mættu og áttu skemmtilega stund undir ljúfum, lifandi tónum og léttum veitingum. Þau Maren Lind Másdóttir framkvæmdastjóri hjá Isavia, E. Magnús Kristinsson forstjóri atNorth gagnaversins og Kári Marís Guðmundsson forstjóri Algalíf héldu áhugaverð erindi um starfsemi og framtíðaráform fyrirtækjanna sem öll starfa á Suðurnesjum. Mikil uppbygging er hjá öllum þessum aðilum en atNorth og Algalíf eru með megin starfsemi sína á Ásbrú og eru í örum vexti. Bæði njóta þau nálægðar við Keflavíkurflugvöll með allar sínar tengingar til Evrópu og Norður Ameríku og í erindi Marenar kom fram að ýmsar framkvæmdir eru framundan á flugvellinum til að bregðast við auknum fjölda farþega sem um hann fara.

Í lok fundarins þakkaði Pálmi Freyr Randversson framkvæmdastjóri Kadeco gestum fyrir komuna og ítrekaði um leið mikilvægi þess að lykilaðilar á svæðinu starfi saman að því að efla Suðurnesin og nýta þau tækifæri sem felast í K64 þróunaráætluninni.

Við hjá Kadeco þökkum kærlega fyrir frábæra stund og hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs og samtals um tækifærin á Suðurnesjum!

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?