March 20, 2026
20/3/2026

Fullt hús á kynningu Kadeco á MIPIM í Frakklandi

Mikill áhugi var á kynningum Kadeco á alþjóðlegu fasteigna- og þróunarráðstefnunni MIPIM sem fram fór í Cannes í Frakklandi dagana 9.–13. mars. Kadeco tók þar í fjórða skiptið þátt á sameiginlegu Íslandssvæði á vegum Íslandsstofu, ásamt fulltrúum annarra íslenskra þróunarfélaga.  

MIPIM er ein stærsta og áhrifamesta ráðstefna heims á sviði fasteignaþróunar. Þar koma saman leiðandi aðilar úr alþjóðlegum skipulags- og byggingargeira, þar á meðal borgir, sveitarfélög, fjárfestar, fjármálafyrirtæki, byggingafélög og birgjar. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir kynningu verkefna, tengslamyndun og umræðu um framtíðarþróun borga og innviða.

Á ráðstefnunni kynnti Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, helstu verkefni félagsins og uppbyggingaráform innan K64 þróunaráætlunarinnar. Erindið var haldið í samstarfi við Íslandsstofu og Betri samgöngur og vakti það töluverða athygli meðal gesta.

„Það var mikil umferð og greinilegur áhugi á framkvæmdaáformum tengdum K64. Við erum nú að taka þátt í fjórða sinn á Íslandsbásnum og finnum fyrir sívaxandi áhuga á svæðinu í heild sinni og þeirri þróun sem þar á sér stað. Alþjóðleg kynning á verkefnunum skiptir sköpum fyrir framgang verkefna á borð við K64. Við teljum að þessi áhugi muni halda áfram að vaxa eftir því sem sýnileiki verkefnanna eykst og fleiri kynnast þeim fjölbreyttu tækifærum sem svæðið hefur upp á að bjóða“ segir Pálmi Freyr.

Nánari upplýsingar um K64 uppbyggingaráform má nálgast hér og hér.

Fréttir

Nánar

News

More

Ertu með spurningar?