
Fyrirtækin sem starfa á K64 kjarnasvæðunum eru fjölmörg og verkefnin sem þau takast á við eru afar ólík. Kadeco hefur síðustu misseri birt stuttar umfjallanir um fyrirtæki á svæðinu með það að markmiði að kynna þá fjölbreyttu starfsemi sem finna má á Suðurnesjum.
Verne Global er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem hóf starfsemi sína á Ásbrú árið 2008. Fyrirtækið rekur sjálfbær gagnaver með áherslu á háa vinnslugetu og nýtingu grænnar orku.
Í dag er Verne Global með starfstöðvar á Íslandi, í Bretlandi og Finnlandi og rekur um 60 þúsund fermetra af byggingum, bæði undir gagnarekstur, stoðbúnað og daglegan rekstur gagnavera. Þjónusta Verne Global felst í því að bjóða alþjóðlegum fyrirtækjum að hýsa tölvubúnað sinn á Íslandi en fyrirtækið sér jafnframt um að tryggja öryggi, afhendingaröryggi orku og kælingu, þannig að tæknibúnaður viðskiptavina geti starfað með áreiðanlegum hætti.

Á fimmta tug starfa hjá Verne Global á Íslandi en langflestir starfsmanna hérlendis búa í nærsamfélögum fyrirtækisins á Suðurnesjum, ýmist á Ásbrú, í Keflavík, Njarðvík, Sandgerði eða öðrum bæjarfélögum.
Innviðir á Ásbrú hentuðu vel til uppbyggingar
Styrmir Hafliðason tók nýverið við starfi framkvæmdastjóra Verne Global. Að sögn Styrmis henta Suðurnesin einstaklega vel fyrir rekstur gagnavera, ekki síst vegna nálægðar við alþjóðaflugvöllinn og þeirra náttúrulegu aðstæðna sem Ísland býður upp á.

„Kæling skiptir gagnaver gríðarlega miklu máli og með því að nýta kalda loftslagið og utanaðkomandi kulda vel fer mun minni orka í að kæla þann búnað sem gagnaver nýta sér,“ segir Styrmir. Við val á staðsetningu fyrir starfsemina kom jafnframt í ljós að þær byggingar sem stóðu eftir á svæðinu eftir brottför bandaríska hersins hentuðu vel hugmyndafræði fyrirtækisins um græna orku og sjálfbærni. „Við gátum nýtt þær byggingar sem þegar voru til staðar og gefið þeim nýtt hlutverk. Þá er nálægð við alþjóðaflugvöllinn lykilatriði fyrir alþjóðlegt fyrirtæki eins og okkur“ bætir hann við.
Gagnaver hluti af nútímainnviðum
Aðspurður um framtíð Verne Global segir Styrmir gagnaver vera órjúfanlegan hluta af nútímainnviðum og mikilvægi þeirra fari sífellt vaxandi. „Gagnaver eru að verða jafn sjálfsagður hluti innviða samfélagsins og orkufyrirtæki,“ segir hann. „Það er afar jákvætt að þessir innviðir, sem samfélagið treystir á, séu staðsettir í okkar nærumhverfi og hluti af framþróun Reykjanessvæðisins. Við erum spennt að vera þátttakendur í þeirri þróun sem framundan er og þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er á svæðinu.“